612b49c Mentormarkþjálfun | Meistaradeildin | MCC vottun | Arnór Már Másson | Markþjálfun
top of page
Meistaradeildin (MCC)

Meistaradeildin er mentormarkþjálfun fyrir lengra komna markþjálfa. Hún er fyrir þá sem hafa hugrekki til þess að hefja undirbúning fyrir MCC vottun! 

 

Þátttakendum gefst einstakt tækifæri til þess að hlusta á og rýna í handritið af annarri MCC upptökunni sem Arnór sendi inn með MCC umsókninni sinni. 


Fyrirkomulag Meistaradeildarinnar:

  • Mentormarkþjálfun í hópi - Fjögur skipti, samtals 10 klst. 

  • Einstaklingstímar - Þrjú samtöl (3 klst).

  • Upptaka markþjálfasamtals, 45 mín. - Skrifleg og munnleg endurgjöf frá Arnóri (MCC) út frá viðmiðum ICF á hæfnisþættina.

  • Lokaður Facebookhópur - Arnór deilir reynslu sinni með myndböndum, að lágmarki vikulega.

Hámark átta meistarar í hópi.

Tímabil: 3 mánuðir.
Staðsetning: Í raunheimum - Hlíðasmári 19, 2. hæð.

Verð: kr. 158.000 staðgreitt eða mánaðargreiðslur kr. 45.000 (samtals kr. 180.000)

Dagsetningar:

 

Mentormarkþjálfun í hópi - Samtals 10 klst

Mánudagar frá kl.13.00-16.00

Mánudagar frá kl.13.00-16.00

Mánudagar frá kl.13.00-16.00

Mánudagar frá kl.13.00-16.00

Einstaklingstímar - Samtals þrjár klst

Mentormarkþjálfun í hópi 

  1. MCC upptaka: Hópurinn fær einstakt tækifæri til þess að hlusta á og rýna í handritið af annarri upptökunni sem Arnór sendi inn með MCC umsókn sinni. Upptakan var metin af ICF til MCC vottunar. Arnór fékk fullt hús stiga fyrir upptökuna og var hæfni hans metin yfir meðallagi í öllum hæfnisþáttum. Arnór hefur fengið góðfúslegt leyfi viðmælanda síns til að deila samtalinu með hópnum.

  2. MCC í hæfnisþáttunum: Markmiðið er að grandskoða muninn í hæfnisþáttunum á milli vottunarstiga með sérstaka áherslu á muninum á milli PCC og MCC.

  3. Markvissar og stuttar æfingar: Tilgangurinn er að laða fram sem mest hjá þátttakendum á stuttum tíma. Hver hæfniþáttur verður æfður með sérstakri áherslu á að ná fram stigsmuninum í hæfni á milli PCC og MCC.

  4. Hið óvænta: Þetta er fyrsti hópurinn sem Arnór fer af stað með og auðvitað er galopið fyrir óvænt tækifæri og hugmyndir þátttakenda.

Einstaklingstímar 

Arnór er með tillögu að uppleggi fyrir þessa þrjá samtalstíma. Uppleggið er valkvætt.

Tímana má nýta á þann hátt sem hver og einn þátttakandi óskar. Tímarnir fara fram í vikunni eftir hvert skipti sem hópurinn kemur saman (eða eftir samkomulagi). 

  1. Fyrsti tíminn. Staðan metin og fundið út úr styrkleikum og veikleikum þátttakandans í markþjálfun. Hann markþjálfar Arnór í 20 mínútur og Arnór veitir endurgjöf á samtalið. Út frá því er gerð skotheld áætlun sem inniheldur skýrar aðgerðir.

  2. Annar tíminn. Lærdómur og vöxtur á milli tíma tekinn saman. Þátttakandinn markþjálfar Arnór í 20 mínútur sem að þeim loknum veitir endurgjöf á framfarir og tækifæri til vaxtar. Út frá henni eru sett markmið varðandi áherslur og færni sem eiga að koma fram í upptöku. Skil á upptöku fara fram viku fyrir þriðja tímann.

  3. Þriðji tíminn. Munnleg endurgjöf á upptöku og tækifæri til vaxtar rædd. Markmið sett áfram veginn til að tryggja vöxt og hæfni á MCC stigi.

Upptaka - Skrifleg og munnleg endurgjöf 

  1. Upptaka markþjálfasamtals er eina heimaverkefnið í meistaradeildinni en þess mun mikilvægara. Þegar rýnt er í upptöku fást tvö öflug sjónarhorn á samtalið, bæði þátttakandans og mentorsins. Með því móti má læra meira og fá fram meiri hæfni á stuttum tíma. 

  2. Skil á upptöku.

  3. Skrifleg endurgjöf verður send til þátttakanda fyrir þriðja tímann hjá Arnóri.

  4. Munnleg endurgjöf frá Arnóri fer fram í þriðja tímanum.

Lokaður hópur á Facebook 

  1. Arnór deilir reynslu sinni með myndböndum að lágmarki vikulega. 

  2. Vettvangur fyrir þátttakendur til þess að deila eigin reynslu og áskorunum.

  3. Vettvangur fyrir spurningar, vangaveltur og kannanir.

Ef það er eitthvað sem þig vantar að vita meira um markþjálfun hjá Arnóri

þá ekki hika við að hafa samband

bottom of page